66. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 5. júní 2020 kl. 13:10


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 13:10
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 13:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 13:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 13:10
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 13:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 13:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 13:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 13:10
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 13:10

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:10
Dagskrárlið frestað.

2) 640. mál - vörumerki Kl. 13:10
Framsögumaður málsins Halla Signý Kristjánsdóttir fór yfir drög að nefndaráliti með breytingartillögu.

Samþykkt var að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna, að Jóni Þóri Ólafssyni frátöldum sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Að nefndaráliti og breytingartillögu meirihluta standa Lilja Rafney Magnúdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ásmundur Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Ísleifsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigurður Páll Jónsson.

Albertína Friðbjörg skrifar undir skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis

3) 839. mál - ferðagjöf Kl. 13:40
Framsögumaður málsins Njáll Trausti Friðbertsson fór yfir drög að nefndaráliti með breytingartillögu.

Samþykkt var að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna, að Jóni Þóri Ólafssyni frátöldum sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Að nefndaráliti og breytingartillögu meirihluta standa Lilja Rafney Magnúdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir.

Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson boðuðu að lagt yrði fram álit minni hluta með breytingartillögu.

4) 639. mál - Orkusjóður Kl. 14:15
Framsögumaður málsins Njáll Trausti Friðbertsson fór yfir drög að nefndaráliti með breytingartillögu.

Samþykkt var að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna.

Að nefndaráliti og breytingartillögu meirihluta standa Lilja Rafney Magnúdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Ólafur Ísleifsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigurður Páll Jónsson.

Albertína Friðbjörg skrifar undir skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

5) 712. mál - Framkvæmdasjóður ferðamannastaða Kl. 14:40
Framsögumaður málsins Ásmundur Friðriksson fór yfir drög að nefndaráliti með breytingartillögu.

Samþykkt var að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna.

Að nefndaráliti og breytingartillögu meirihluta standa Lilja Rafney Magnúdóttir, ,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Ísleifsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigurður Páll Jónsson.

Albertína Friðbjörg skrifar undir skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

6) Önnur mál Kl. 15:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00